Hvað er eigilega málið með mig þessa dagana? Ég er
ekki alveg að fatta þetta, allt sem hægt var að fara
úrskeiðis fór úrskeiðis.
Þetta er ekkert smá
skondið.
Vinur
minn er búinn að vera að reyna að koma í bæinn frá Akureyri til að
hitta mig síðan á föstudaginn en einmitt út af þessu er hann ekki
ennþá kominn.
Sem er frekar fúllt þar sem þetta er bara flottasti
gaurinn á landinu sko.
Á
föstudaginn var hann að vona að veðrinu á Akureyri mundi ekki lægja
svo að skipið sem hann annars þyrfti að afferma á
laugardaginum hefði ekki getað komist inní fjörðin til að
getað lagst að höfn, en viti menn, það kom þetta líka sakalega góða
veður.
Á
laugardagsmorguninn var hann að voast til að rigningin mundi aukast
til að þeir mundu bara hætta og komast í bæinn, en nei nei aðuvitað
gerðist það ekkert.
Seinni partinn á laugardaginn var hann
að vonast til að þeirundu ná að klára að taka uppúr skipinu svo að
hann kæmist suður en þá kom lögreglan og stoppaði
þá.
Þá fór
hann að reyna að finna einhver til að vinna fyrir sig á
sunnudeginum n enginn nennti því.
Á sunnudeginum vonaðist hann til að vera bara búinn
snemma svo að hann gæti allavegana komið eitthvað smá suður, en nei
auðvitað ekki, þá þurftihelvitis kranafíflið endilega að bila
þannig að hann komst ekki suður þá helgina.
Svo
ætaði ég að reyna að fljúga norður til hans í kvöld en þá þurfti
hann endilega að fá útkall uppí Mývantssveit þannig að það var
náttúrulega ekki heldur hægt frekar en neitt annað sem við vorum
búin að vera að reyna eða vonast eftir.
En ég
held og vona að hann sé loksins að koma í bæinn á morgunn, en æeg
er samt að hugsa um að vera ekki neitt of spennt því að annars er
ég viss um að eitthvað kemur uppá.
En svo
var það sko heldur betur dropnn sem að fyllti mælirinn
hjá mér sem kom fyrir í morgunn, haldiði ekki bara að
Rósa frænka hafi ekki komið í heimsókn til mín í morgunn og
gaurinn fer aftur norður á sunnudaginn,
þannig að ég er farin
að spá í hvort að við eigum nokkuð að hittast?
þetta er
náttúrulega ekki einu sinni smá eðlilegt hvað þetta er búið að vera
erfitt fyrir okkur.
Mig lanar bara mest að
gráta.
Jæja ég
ætla að hætta núna og læt ykkur kannski vita á morgunn hvort að
þetta hafi gengið upp og hann komist í bæinn eða hvort að ég sé
ennþá að bíða.
Kv,
Ásta